Countdown í næsta leik

Wednesday, June 4, 2008

Skylduverkin

Fjórði leikurinn í Carlsbergdeildinni og stemmningin í mannskapnum var ágæt fyrir leik. Mótherjarnir voru KF Mjöðm, strákar sem eru á sínu fyrsta ári í Carlsbergdeildinni og fyrirfram taldir lið sem mun verma botnsæti riðilsins. Liðið var búið að spila þrjá leiki í deildarkeppninni og tapað þremur en gerðu jafntefli á móti Mývetningum.
Mættir voru: Andri, Arnþór Ingi, Bjarki, Golli, Grímur, Grjóni, Halldór, Jón Heiðar, Smári, Steinar og Sölvi. Fyrirliðinn stillti upp liðinu í 2-3-1 uppstillingu. Totti var í markinu, Smári og Steinar í vörninni, Grímur, Bjarki og Andri á miðjunni og Sölvi frammi.
Liðsmenn spiluðu með sorgarbönd í ljósi fráfalls í fjölskyldu þriggja leikmanna.
Leikurinn var varla byrjaður þegar Steinar á þennan líka þrumufleyg sem lak í gegnum alla vörnina og greinilega markmanninn líka og þar var fyrsta markið komið, 1-0. Upp úr þessu náðum við tökum á leiknum og fórum að spila einfaldan bolta. Þrátt fyrir nokkur góð færi létu mörkin standa á sér. Nokkru síðar komumst við í álitlega sókn, boltinn fór inn í vítateigspakkann en skoppaði út þar sem Bjarki tók við boltanum. Hann lagði fyrir sig boltann og setti hnitmiðaðan bolta á fjærstöngina, 2-0. Þegar leið á fyrri hálfleikinn komust andstæðingarnir meir og meir inn í leikinn, enda var liðið okkar komið nokkuð framarlega á völlinn. Náðu þeir nokkrum skyndisóknum en hættulegasta færi þeirra, eina alvöru færi þeirra í leiknum, var hafnað af Totta sem kom snilldarlega út á móti sóknarmanni KF Mjöðm. Segja má að fyrri hálfleikurinn hafi leyst upp í rugl bolta og voru menn komnir með augun af því að spila bolta og menn komnir út í eitthvað annað.
Seinni hálfleikurinn var alger einstefna af okkar hálfu og eru liðsmenn enn að klóra sér í hausnum yfir því að hafa ekki nýtt öll þau dauðafæri sem voru misnotuð. Loksins brotnaði ísinn í seinni hálfleiknum og var þar Bjarki að verki eftir smá klafs í teignum, 3-0. Áfram hélt sóknin okkar að þyngjast og þrátt fyrir að menn stæðu einir á móti auðu markinu þá var boltinn ekki á því að fara inn. Það var svo langt liðið á seinni hálfleikinn þegar Grjóni nær boltanum upp við endalínu og sendir fyrir, þar kemur Andri á sprettinum inn í teig og stangaði boltann á nærstöngina, 4-0. Það var svo rétt áður en flautað var til leiksloka að Grjóni setti boltann í netið. Sending kom inn í teiginn og upp úr klafsinu datt boltinn á Grjóna sem potaði boltanum inn með tilheyrandi fagnaðarlátum, 5-0. Loksins loksins tóks honum að komast á skorkortið. Miðað við öll þau dauða-dauða-dauðafæri sem við sköpuðum okkur í leiknum hefði enginn verið hissa að sjá tíu marka sigur en svo fór sem fór og sigur er sigur.
Maður leiksins: Bjarki

No comments: