Countdown í næsta leik

Friday, June 27, 2008

Erfiðar þessar pásur

Sjötti leikurinn í Carlsbergdeildinni og stemmningin í mannskapnum var góð fyrir leik. Mótherjarnir voru Mývetningar, strákar sem eru á sínu fyrsta ári í Carlsbergdeildinni og fyrirfram taldir verðugir andstæðingar með stórskyttuna innanborðs. Liðið var búið að spila fimm leiki í deildarkeppninni og fengið sín stig úr 2 jafnteflum.
Mættir voru: Bjarki, Golli, Grímur, Gummi, Halldór, Jói, Jón Heiðar, Smári, Stebbi og Sölvi. Fyrirliðinn stillti upp liðinu í 2-3-1 uppstillingu. Stebbivar í markinu, Smári og Halldór í vörninni, Grímur, Bjarki og Gummi á miðjunni og Sölvi frammi.
Leikurinn byrjaði í baráttu og þannig hélt það áfram þangað til að eftir ca. tíu mínútur hnoða Mývetningar boltanum í gegnum vörnina á svo óskiljanlegan hátt að undirritaður hreinlega man ekki hvað gerðist, boltanum potað inn og staðreyndin því augljós, 0-1. Þetta færði andstæðingunum aukinn kraft og var augljóst að okkar menn voru ekki mættir til leiks og gekk einfalt spil illa. Ekki leið á löngu fyrr en að önnur eins varnarmistök áttu sér stað sem skiluðu sér í marki andstæðinganna. Þeir höfðu sótt stíft og voru með boltann inn á miðjum okkar vallarhelmingi, færsla frá vinstri til hægri þegar boltamaðurinn sér glufu á vörninni og að varnarmaður fylgir ekki sinni dekkningu í hlaupinu, heldur er að horfa á boltann. Sending inn í gegnum miðja vörnina þar sem sóknarmaðurinn þurfti einungis að pikka boltanum inn, 0-2. Grettismenn áttu nokkur ágæt færi eftir þetta og bar þá helst skallinn sem Sölvi fékk ca. hálfum metra út frá stönginni, eftir gott samspil hans og Bjarka, en einhverra hluta vegna smaug boltinn vitlausu megin við stöngina. Lítið markvert gerðist fram að hálfleik og staðan þung þegar dómari flautaði til hálfleiks.
Markmannsskipti voru í hálfleiknum og kom Gummi í stað Stebba. Menn voru staðráðnir að vakna til lífsins eftir slakan fyrri hálfleik og það hafðist fljótlega að vinna stöður og halda boltanum. Við vorum yfirburðalið til að byrja með en það eru þessar síðustu sendingar/snertingar áður en marktækifærið lítur dagsins ljós. Á ca. tveggja til þriggja mínútna kafla um miðjan hálfleikinn tók svo Jói til sinna mála. Fyrst fær hann boltann innarlega á hægri kantinum, tekur boltann yfir á vinstri og búmm, boltinn lak einhvern vegin í gegnum alla vörnina og markmaðurinn sá þetta varla og því lak tuðran inn, 1-2. Áfram héldum við að pressa og aftur fékk Jói boltann á svipuðum stað, ekkert annað í stöðunni en að skjóta en nú hafði boltinn viðkomu í varnarmanni áður en hann lak inn í mitt markið, 2-2. Þarna voru menn farnir að sjá ljósið en þrátt fyrir harðari leik andstæðinganna og nokkrar aukaspyrnur fyrir framan mark andstæðinganna þá gekk ekkert að koma almennilegum skotum á markið. Framhjá eða í varnarmann og á endanum var dómarinn búinn að fá nóg. Leik lokið og staðan 2-2.
Maður leiksins: Jói

1 comment:

Anonymous said...

Stórskyttan;)