Countdown í næsta leik

Sunday, May 25, 2008

Dapur endir

Dagurinn eftir Eurovision er alltaf erfiður fyrir Grettismenn til að spila fótbolta og þessi dagur var engin undantekning. Þetta var leikur í bikarkeppninni og voru mótherjarnir FC Miroslav, snöggir strákar sem beita skæðum skyndisóknum. Liðið var búið að spila þrjá leiki í deildarkeppninni og tapað einum á móti einu sterkasta liðinu í þeirra riðli
Mættir voru: Andri, Arnór, Bjarki, Golli, Grímur, Grjóni, Gummi Ómars, Jói, Jón Heiðar, Smári, Stebbi, Steinar og Sölvi. Fyrirliðinn stillti upp liðinu í 2-3-1 uppstillingu. Grjóni var í markinu, Smári og Steinar í vörninni, Jói Bjarki og Stebbi á miðjunni og Sölvi frammi.
Leikurinn byrjaði í jafnvægi og fikruðu bæði lið sig áfram með sóknum á víxl. Það voru varla liðnar nema átta til tíu mínútur liðnar af leiknum þegar fyrsta markið leit dagsins ljós, há sending kom fyrir og þar stökk Sölvi manna hæst upp og setti boltann í autt markið, 1-0. Áfram hélt leikurinn og við sóttum í okkur veðrið, stuttu síðar komust Jói og Bjarki upp vinstri kantinn með léttu þríhyrningsspili. Bjarki tók á varnarmann, komst framhjá varnarmanninum eftir smá klafs og var kominn upp að endalínu. Í stað þess að senda boltann út í teig ákvað hann að skjóta á nærstöngina og boltinn lá inni, 2-0. Andstæðingarnir komu sterkir til baka og sóttu stíft, eftir eina skyndisókn náðu þeir skoti og boltinn lá inni stöngin inn, 2-1. Áfram hélt stórsókn andstæðinganna og fljótlega komust þeir í ágætis skotfæri sem leiddi til jöfnunarmaksins, 2-2. Á þessum tímapunkti fór að bera á þreytu okkar manna og menn héldu sér illa í stöðum. FC Miroslav fengu aukaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks, í stað þess að skjóta var boltinn sendur þéttingsfast að fjærstönginni þar sem einn þeirra var á auðum sjó og lítið annað en að læða boltanum yfir línuna, 2-3. Fljótlega eftir var flautað til hálfleiks.
Seinni hálfleikurinn byrjaði okkar og var sett gríðarleg pressa á að jafna leikinn, sókn eftir sókn áttum við ágætis færi en tókst ekki að nýta. Það leið ekki á löngu áður en okkur var refsað fyrir að sækja fram á völlinn, sóknarmaðurinn tók á varnarmann okkar og skaut óverjandi skoti á rammann, 2-4. Áfram héldum við að pressa en það sama var upp á teningnum, við fengum skyndisókn í bakið þar sem sóknarmaður þeirra lék á einn og svo annan varnarmann og skoraði, 2-5. Þarna virtist allt sem heitir vörn vera komið einhvers staðar lengst norður fyrir hníf og gaffal og fylgdi sjötta mark andstæðinganna, 2-6. Smá svar við þessu kom í einni sókna okkar þegar föst sending kom fyrir og varð fóturinn á Grjóna fyrir barðinu á þessum þrumufleyg, 3-6. Við þetta kom smá líf í hópinn og sóknin batnaði til muna, Adam var þó ekki lengi í paradís. Eftir mikla sóknartilburði var kominn mikill æsingur í Smára sem fékk að líta rauða spjaldið, það má víst ekki tilkynna dómaranum að hann sé "fokking hálfviti". Manni færri áttum við ekki möguleika og ekki leið á löngu áður en sjöunda markið var komið hjá andstæðingunum. Vítaspyrna var dæmd á Steinar í markinu en hann tók niður sóknarmann þeirra í tilraun han að reyna fara fram hjá honum. 3-7. Stuttu síðar lauk leiknum.
Maður leiksins: Bjarki

6 comments:

Anonymous said...

ótrúlegt en satt þá kaus ég ekki sjálfann mig og er kominn með atkvæði;)

Anonymous said...

Enn og einu sinni vil ég þakka velgjörðarmönnum mínum fyrir traustið. Atkvæði í hverri kosningu er framar mínum björtustu vonum og ég er hrærður.

Thank you, thank you very much!


ps. gruna tvíburana um kosningasvik!

Anonymous said...

Sést hvað er mikið að marka þessa kosningu.

Maður leiksins sem var útnefndur af Smára er ekki með eitt atkvæði. Fannsta nú Bjarki skástur af liðinu en fannst allt liðið vera leika langt undir getu og getur miklu betur.

Sýnis þessi kosning snúast um það hver er með flestar tölvur til að kjósa ;o)

Anonymous said...

Gef Smára mitt atkvæði fyrir rauða spjaldið. Láta þennan froðuhaus heyra það, náttúrulega fáránlegur í alla staði þessi dómari. Ég er rétt farinn að geta farið aftur í vinnu eftir þessa fólskulegu árás, í þessum leik.

Anonymous said...

Strákar við verðum bara að fara taka á þessu núna mér sýnist það að ég geti mætt í næsta leik hjá okkur samkvæmt dagskránni og þá verður tekið á því með kveðju frá New York

Anonymous said...

Hver er Oddur?

Með markahæstu mönnum eftir 3 umferðir er Oddur í FC Gretti?

Skráið þið bara öll mörk sem við skorum á Odd? og hirðum þannig markakóngstitilinn.

http://carlsbergdeildin.net/