Fyrsti leikur í Carlsbergdeildinni hjá FC Gretti var í dag kl. 15 á Leiknisvellinum, spilað var á móti Ginola.
Mættir voru: Andri, Arnþór, Arnór, Golli, Grímur, Grjóni, Smári, Stebbi, Steinar, Sölvi.
Fyrirliðinn stilti upp liðinu og varð 2-3-1 taktíkin fyrir valinu. Grjóni var í markinu, Steinar og Smári í vörninni, Grímur Andri og Arnór á miðjunni og Sölvi frammi.
Það var nokkur vindur og hvessti þegar leið á leikinn.
Menn voru nokkuð riðgaðir í spilinu á fyrstu mínútunum en það voru andstæðingarnir líka. Í miðjum fyrri hálfleik skoraði Andri með hægrifótar skoti upp í hægri skeytin, eftir nokkuð klafs í gegnum vörn andstæðinganna. 1-0. Áfram hélt miðjubaráttan en smám saman náðum við meiri tökum á leiknum. Eftir stutta hvíld kom Andri aftur inn á í lok fyrri hálfleiks, tók við boltanum á miðjunni lék á einn og svo annan og tók vinstrifótar skot í fjærhornið. 2-0. Hættulegasta færið eftir seinna markið átti Golli, sending kom fyrir og hann var einn á fjærstöng. Skallinn var varinn af markmanni andstæðinganna í stöngina. Fljótlega kom hálfleikur.
Seinni hálfleikur hófst eins og þeim fyrri lauk, við héldum boltanum meira og stjórnuðum ferðinni án þess þó að skapa okkur góð færi. Þegar ca. tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum unnum við boltann á þeirra vallarhelming, stungusending á Sölva sem skilaði boltanum í netið. 3-0. Nokkur ágæt færi fóru forgörðum en svo fór sem fór. Ginola voru svo ákveðnir í komast á skorkortið og pressuðu þeir stíft síðustu tíu mínúturnar. Að lokum fengu þeir skotfæri fyrir utan teig sem rann í gegnum alla vörnina og mark. 3-1. Eftir markið komst á jafnvægi og leikurinn leið undir lok. Góður sigur í fyrsta leik.
Maður leiksins: Andri Freyr.
Sunday, May 4, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment