Leikmenn mættu tímanlega í annan leik tímabilsins og var fjölmenn mæting. Mótherjarnir voru Húarnir sem voru óskrifað blað en áttu einn sigur fyrir þennan leik á móti Premier FC, 2-0.
Mættir voru: Andri, Arnór, Bjarki, Golli, Grímur, Gummi Ómars, Halldór Páll, Jói, Jón Heiðar, Jón Örn, Kolli, Krummi, Smári, Stebbi, Sölvi.
Fyrirliðinn stilti upp liðinu og varð 2-3-1 taktíkin fyrir valinu. Krummi var í markinu, Kolli og Smári í vörninni, Stebbi, Bjarki og Andri á miðjunni og Sölvi frammi.
Það var topp veður í Breiðholtinu, alger rjómablíða og betra gerist það ekki.
Leikurinn byrjaði á nokkru miðjumoði og var nokkur barátta milli liðanna þó svo að færin hafi látið á sér standa. Það var komið inn í miðjan fyrri hálfleikinn þegar að Kolli fær boltann á miðsvæðinu, keyrir fram og lætur vaða á markið. Með léttri snertingu í varnarmann smaug boltinn inn, stöngin inn. 1-0. Áfram hélt baráttan þó svo að Grettismenn væru að ná betri tökum á leiknum og þegar fimm til tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik nær Smári boltanum á miðjusvæðinu, þýtur upp miðjuna eins og eldibrandur og lætur vaða á markið. Þvílíkt skot/sending sem endar beint á Sölva sem var á ferðinni inn í teig og með léttri snertingu setur boltann í autt markið. 2-0. Húarnir bættu örlítið í sóknina og allt kom fyrir ekki og staðan óbreytt í hálfleik.
Þar sem mæting var góð þá var hægt að skipta ört inn á ef menn voru þreyttir og kom því algerlega nýtt lið inn á í seinni hálfleik. Það var að virka vel því menn vissu að þeir þyrftu að nýta vel þær mínútur sem þeir fengu. Seinni hálfleikurinn byrjaði sem gott framhald af þeim fyrri og vorum við snöggir að ná stjórn á leiknum. Eftir gott spil og nokkur góð færi þá lak inn þriðja markið eftir smá moð á vinstri kantinum hjá Jóni Heiðari. Hann komst nær marki og ætlaði að setja boltann inn en þar sem Gummi Ómars var í "betra færi" þá skrifast markið á Gumma. 3-0. Þegar leið á leikinn þá var þetta orði alger einstefna og sóttu Grettismenn látlaust á markið og dauðafæri hrönnuðust upp. Að lokum lak inn fjórða markið þegar Jói lék á mann og annan og sendi fyrir autt markið en þar var Sölvi kominn inn á markteig og ekkert annað en að pota tuðrunni inn. 4-0. Áframhaldandi einstefna og við á bekknum vorum hættir að telja dauðafærin, kunnum hreinlega ekki að telja svona hátt. Eina almennilega færi Húanna kom þegar ca. átta til tíu mínútur voru eftir af leiknum. Sending inn í vítateig vinstra megin þar sem andstæðingurinn var kominn einn innfyrir en Krummi bjargaði meistaralega í horn.
Stórgóður leikur og spilamennskan í góðum farvegi hjá liðinu, liðssigur hjá þéttum hóp.
Maður leiksins: Grímur Gunnars
Tuesday, May 13, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Erfitt að taka einhvern einn út sem mann leiksins. Mér fannst liðsheildin og Smári fær plús fyrir leikskipulagið. Nota nóg af mönnum og gjörsamlega sprengja greyið Húana í seinni.
Liðsheildin var frábær hjá okkur í síðasta leik og á hver einasti leikmaður hrós skilið fyrir mikinn dugnað. Auðvitað er erfitt að pikka einn út en betra að kjósa einhvern sem stóð sig vel en að sleppa því. Til þess eru kannanir.
jæja það er helv. gott að allt gangi að óskum.... með kveðju úr sólinni Gámurinn
Post a Comment