Fyrir leik var vitað mál að mætingin yrði ekki eins góð og í síðasta leik og datt tíundi maðurinn inn rétt fyrir kick off. Mótherjarnir í kvöld voru ÍK, sterkir strákar sem hafa spilað mikið saman. Fyrir leikinn höfðu þeir unnið einn leik og tapað öðrum stórt.
Mættir voru: Andri, Bjarki, Golli, Grímur, Gummi Ómars, Jói, Jón Heiðar, Kolli, Smári og Stebbi. Í fjarveru fyrirliðans stillti Smári upp liðinu í hina margfrægu 2-3-1 uppstillingu. Smári var í markinu, Kolli og Stebbi í vörninni, Jói Bjarki og Andri á miðjunni og Grímur frammi.
Leikurinn byrjaði á pressu hjá andstæðingunum sem endaði með því að sofandaháttur í vörninni skapaði opið markskot sem lá inni, 0-1. Eftir þetta vöknuðu okkar menn aðeins og fóru að spila saman, þegar leið á fyrri hálfleikinn varð spilamennska Grettismanna þéttari og við náðum góðum tökum á leiknum. Með góðu spili sköpuðum við okkur um þrjú færi maður á móti markmanni en ekki vildi boltinn inn fyrir vömbina á markmanni andstæðinganna. Óbreytt staða í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn byrjaði eins og sá fyrri, Grettismenn í stöðugri sókn þótt að skortur hafi verið á opnum færum. Sókn eftir sókn pressuðum við á ÍK en fimm manna þéttur varnarpakki virtist ætla verða of mikið fyrir okkur. Nærri mínútu fyrir leikslok fengum við hornspyrnu, Andri kom inn á og tók sprettinn inn í teig. Sendingin rataði beint á kollinn á honum en á marklínunni beið enn ein bumban sem bjargaði því sem bjargað var fyrir andstæðingana. Þrátt fyrir mikla baráttu og yfirburða spilamennsku mest allan leikinn þá varð niðurstaðan tap. Vonbrigði eftir góða spilamennsku okkar manna og mikla yfirburði í leiknum.
Maður leiksins: Kolli
Monday, May 19, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comments:
Ætluðuð þið eitthvað að taka þátt í þessu Gróttu móti?
Post a Comment