Countdown í næsta leik

Friday, June 27, 2008

Framundan er...

Nú um helgina verður spiluð hin árlega Bikarkeppni HSS í knattspyrnu, þetta er fyrri hluti og verður haldin á Skeljavíkurgrundum, leikar hefjast kl. 10 á laugardagsmorguninn. Grettismenn mæta galvaskir til leiks og eru óþreyjufullir þetta árið að taka bikarinn með sér heim.

Fljótlega eftir helgi, miðvikudaginn 2. júlí, er svo komið að sjöunda leik sumarsins í Carlsbergdeildinni. Andstæðingarnir eru Premier FC og verður það án efa hörkuleikur. Lið sem er uppfullt af fínum strákum sem hafa þó ekki náð að smella í sumar, hvað sem veldur því.

Góða helgi og áfram Grettir.

Erfiðar þessar pásur

Sjötti leikurinn í Carlsbergdeildinni og stemmningin í mannskapnum var góð fyrir leik. Mótherjarnir voru Mývetningar, strákar sem eru á sínu fyrsta ári í Carlsbergdeildinni og fyrirfram taldir verðugir andstæðingar með stórskyttuna innanborðs. Liðið var búið að spila fimm leiki í deildarkeppninni og fengið sín stig úr 2 jafnteflum.
Mættir voru: Bjarki, Golli, Grímur, Gummi, Halldór, Jói, Jón Heiðar, Smári, Stebbi og Sölvi. Fyrirliðinn stillti upp liðinu í 2-3-1 uppstillingu. Stebbivar í markinu, Smári og Halldór í vörninni, Grímur, Bjarki og Gummi á miðjunni og Sölvi frammi.
Leikurinn byrjaði í baráttu og þannig hélt það áfram þangað til að eftir ca. tíu mínútur hnoða Mývetningar boltanum í gegnum vörnina á svo óskiljanlegan hátt að undirritaður hreinlega man ekki hvað gerðist, boltanum potað inn og staðreyndin því augljós, 0-1. Þetta færði andstæðingunum aukinn kraft og var augljóst að okkar menn voru ekki mættir til leiks og gekk einfalt spil illa. Ekki leið á löngu fyrr en að önnur eins varnarmistök áttu sér stað sem skiluðu sér í marki andstæðinganna. Þeir höfðu sótt stíft og voru með boltann inn á miðjum okkar vallarhelmingi, færsla frá vinstri til hægri þegar boltamaðurinn sér glufu á vörninni og að varnarmaður fylgir ekki sinni dekkningu í hlaupinu, heldur er að horfa á boltann. Sending inn í gegnum miðja vörnina þar sem sóknarmaðurinn þurfti einungis að pikka boltanum inn, 0-2. Grettismenn áttu nokkur ágæt færi eftir þetta og bar þá helst skallinn sem Sölvi fékk ca. hálfum metra út frá stönginni, eftir gott samspil hans og Bjarka, en einhverra hluta vegna smaug boltinn vitlausu megin við stöngina. Lítið markvert gerðist fram að hálfleik og staðan þung þegar dómari flautaði til hálfleiks.
Markmannsskipti voru í hálfleiknum og kom Gummi í stað Stebba. Menn voru staðráðnir að vakna til lífsins eftir slakan fyrri hálfleik og það hafðist fljótlega að vinna stöður og halda boltanum. Við vorum yfirburðalið til að byrja með en það eru þessar síðustu sendingar/snertingar áður en marktækifærið lítur dagsins ljós. Á ca. tveggja til þriggja mínútna kafla um miðjan hálfleikinn tók svo Jói til sinna mála. Fyrst fær hann boltann innarlega á hægri kantinum, tekur boltann yfir á vinstri og búmm, boltinn lak einhvern vegin í gegnum alla vörnina og markmaðurinn sá þetta varla og því lak tuðran inn, 1-2. Áfram héldum við að pressa og aftur fékk Jói boltann á svipuðum stað, ekkert annað í stöðunni en að skjóta en nú hafði boltinn viðkomu í varnarmanni áður en hann lak inn í mitt markið, 2-2. Þarna voru menn farnir að sjá ljósið en þrátt fyrir harðari leik andstæðinganna og nokkrar aukaspyrnur fyrir framan mark andstæðinganna þá gekk ekkert að koma almennilegum skotum á markið. Framhjá eða í varnarmann og á endanum var dómarinn búinn að fá nóg. Leik lokið og staðan 2-2.
Maður leiksins: Jói

Tuesday, June 24, 2008

Næsti leikur á morgun

Loksins loksins er komið að leik, á morgun verður líka stórveisla. Stórlið Grettis mun taka á móti Mývetningum á heimavelli sínum í Breiðholtinu, leikurinn hefst kl. 22 annað kvöld.
Í röðum Mývetninga er Michael Owen okkar Grettismanna, Grjóni. Hann hefur verið meira meiddur en hann hefur spilað og þá yfirleitt valdið sárum vonbrigðum, þú ert samt ágætur !!!
Mývetningar eru ágætlega spilandi lið sem eins og mörg önnur eiga erfitt með að slútta sendingum á síðasta þriðjungnum.

Svo er smá hugleiðing í lokin, Boot Camp spilar við ÍK og Vinningsliðið spilar við Markaregn. Þetta þýðir að við munum skjóta okkur upp í 2-3 sætið með sigri annað kvöld.

Upp með rassgatið og sýnum vargnum hvernig fótbolti er spilaður á Ströndunum.

Wednesday, June 4, 2008

Síðasta kosning

Eftir æsispennandi kosningu um mann síðasta leiks var það Smári sem heillaði flesta leikmenn liðsins og fékk 4 atkvæði. Hvort það teljist hrós að fá þessa útnefningu fyrir það eitt að fá rautt spald fyrir að láta dómarann heyra það, veit ég ekki. Enn og einu sinni litast þessi kosning af eigin hagsmunum og siðspilltum viðhorfum leikmanna, skammist ykkar. Af gefnu tilefni vill Smári þakka fyrir þennan mikla heiður sem þið, síðulesendur, veittuð honum.

Af gefnu tilefni viljum við Grettismenn votta tvíburunum og fjölskyldu þeirra samúð okkar í ljósi andláts föðurs þeirra. Hugur liðsmanna er hjá ykkur og viljum við einfaldlega segja að tekinn hefur verið frá okkur góður maður.

Áfram Grettir

Skylduverkin

Fjórði leikurinn í Carlsbergdeildinni og stemmningin í mannskapnum var ágæt fyrir leik. Mótherjarnir voru KF Mjöðm, strákar sem eru á sínu fyrsta ári í Carlsbergdeildinni og fyrirfram taldir lið sem mun verma botnsæti riðilsins. Liðið var búið að spila þrjá leiki í deildarkeppninni og tapað þremur en gerðu jafntefli á móti Mývetningum.
Mættir voru: Andri, Arnþór Ingi, Bjarki, Golli, Grímur, Grjóni, Halldór, Jón Heiðar, Smári, Steinar og Sölvi. Fyrirliðinn stillti upp liðinu í 2-3-1 uppstillingu. Totti var í markinu, Smári og Steinar í vörninni, Grímur, Bjarki og Andri á miðjunni og Sölvi frammi.
Liðsmenn spiluðu með sorgarbönd í ljósi fráfalls í fjölskyldu þriggja leikmanna.
Leikurinn var varla byrjaður þegar Steinar á þennan líka þrumufleyg sem lak í gegnum alla vörnina og greinilega markmanninn líka og þar var fyrsta markið komið, 1-0. Upp úr þessu náðum við tökum á leiknum og fórum að spila einfaldan bolta. Þrátt fyrir nokkur góð færi létu mörkin standa á sér. Nokkru síðar komumst við í álitlega sókn, boltinn fór inn í vítateigspakkann en skoppaði út þar sem Bjarki tók við boltanum. Hann lagði fyrir sig boltann og setti hnitmiðaðan bolta á fjærstöngina, 2-0. Þegar leið á fyrri hálfleikinn komust andstæðingarnir meir og meir inn í leikinn, enda var liðið okkar komið nokkuð framarlega á völlinn. Náðu þeir nokkrum skyndisóknum en hættulegasta færi þeirra, eina alvöru færi þeirra í leiknum, var hafnað af Totta sem kom snilldarlega út á móti sóknarmanni KF Mjöðm. Segja má að fyrri hálfleikurinn hafi leyst upp í rugl bolta og voru menn komnir með augun af því að spila bolta og menn komnir út í eitthvað annað.
Seinni hálfleikurinn var alger einstefna af okkar hálfu og eru liðsmenn enn að klóra sér í hausnum yfir því að hafa ekki nýtt öll þau dauðafæri sem voru misnotuð. Loksins brotnaði ísinn í seinni hálfleiknum og var þar Bjarki að verki eftir smá klafs í teignum, 3-0. Áfram hélt sóknin okkar að þyngjast og þrátt fyrir að menn stæðu einir á móti auðu markinu þá var boltinn ekki á því að fara inn. Það var svo langt liðið á seinni hálfleikinn þegar Grjóni nær boltanum upp við endalínu og sendir fyrir, þar kemur Andri á sprettinum inn í teig og stangaði boltann á nærstöngina, 4-0. Það var svo rétt áður en flautað var til leiksloka að Grjóni setti boltann í netið. Sending kom inn í teiginn og upp úr klafsinu datt boltinn á Grjóna sem potaði boltanum inn með tilheyrandi fagnaðarlátum, 5-0. Loksins loksins tóks honum að komast á skorkortið. Miðað við öll þau dauða-dauða-dauðafæri sem við sköpuðum okkur í leiknum hefði enginn verið hissa að sjá tíu marka sigur en svo fór sem fór og sigur er sigur.
Maður leiksins: Bjarki

Sunday, May 25, 2008

Dapur endir

Dagurinn eftir Eurovision er alltaf erfiður fyrir Grettismenn til að spila fótbolta og þessi dagur var engin undantekning. Þetta var leikur í bikarkeppninni og voru mótherjarnir FC Miroslav, snöggir strákar sem beita skæðum skyndisóknum. Liðið var búið að spila þrjá leiki í deildarkeppninni og tapað einum á móti einu sterkasta liðinu í þeirra riðli
Mættir voru: Andri, Arnór, Bjarki, Golli, Grímur, Grjóni, Gummi Ómars, Jói, Jón Heiðar, Smári, Stebbi, Steinar og Sölvi. Fyrirliðinn stillti upp liðinu í 2-3-1 uppstillingu. Grjóni var í markinu, Smári og Steinar í vörninni, Jói Bjarki og Stebbi á miðjunni og Sölvi frammi.
Leikurinn byrjaði í jafnvægi og fikruðu bæði lið sig áfram með sóknum á víxl. Það voru varla liðnar nema átta til tíu mínútur liðnar af leiknum þegar fyrsta markið leit dagsins ljós, há sending kom fyrir og þar stökk Sölvi manna hæst upp og setti boltann í autt markið, 1-0. Áfram hélt leikurinn og við sóttum í okkur veðrið, stuttu síðar komust Jói og Bjarki upp vinstri kantinn með léttu þríhyrningsspili. Bjarki tók á varnarmann, komst framhjá varnarmanninum eftir smá klafs og var kominn upp að endalínu. Í stað þess að senda boltann út í teig ákvað hann að skjóta á nærstöngina og boltinn lá inni, 2-0. Andstæðingarnir komu sterkir til baka og sóttu stíft, eftir eina skyndisókn náðu þeir skoti og boltinn lá inni stöngin inn, 2-1. Áfram hélt stórsókn andstæðinganna og fljótlega komust þeir í ágætis skotfæri sem leiddi til jöfnunarmaksins, 2-2. Á þessum tímapunkti fór að bera á þreytu okkar manna og menn héldu sér illa í stöðum. FC Miroslav fengu aukaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks, í stað þess að skjóta var boltinn sendur þéttingsfast að fjærstönginni þar sem einn þeirra var á auðum sjó og lítið annað en að læða boltanum yfir línuna, 2-3. Fljótlega eftir var flautað til hálfleiks.
Seinni hálfleikurinn byrjaði okkar og var sett gríðarleg pressa á að jafna leikinn, sókn eftir sókn áttum við ágætis færi en tókst ekki að nýta. Það leið ekki á löngu áður en okkur var refsað fyrir að sækja fram á völlinn, sóknarmaðurinn tók á varnarmann okkar og skaut óverjandi skoti á rammann, 2-4. Áfram héldum við að pressa en það sama var upp á teningnum, við fengum skyndisókn í bakið þar sem sóknarmaður þeirra lék á einn og svo annan varnarmann og skoraði, 2-5. Þarna virtist allt sem heitir vörn vera komið einhvers staðar lengst norður fyrir hníf og gaffal og fylgdi sjötta mark andstæðinganna, 2-6. Smá svar við þessu kom í einni sókna okkar þegar föst sending kom fyrir og varð fóturinn á Grjóna fyrir barðinu á þessum þrumufleyg, 3-6. Við þetta kom smá líf í hópinn og sóknin batnaði til muna, Adam var þó ekki lengi í paradís. Eftir mikla sóknartilburði var kominn mikill æsingur í Smára sem fékk að líta rauða spjaldið, það má víst ekki tilkynna dómaranum að hann sé "fokking hálfviti". Manni færri áttum við ekki möguleika og ekki leið á löngu áður en sjöunda markið var komið hjá andstæðingunum. Vítaspyrna var dæmd á Steinar í markinu en hann tók niður sóknarmann þeirra í tilraun han að reyna fara fram hjá honum. 3-7. Stuttu síðar lauk leiknum.
Maður leiksins: Bjarki

Monday, May 19, 2008

Allt kom fyrir ekki...

Fyrir leik var vitað mál að mætingin yrði ekki eins góð og í síðasta leik og datt tíundi maðurinn inn rétt fyrir kick off. Mótherjarnir í kvöld voru ÍK, sterkir strákar sem hafa spilað mikið saman. Fyrir leikinn höfðu þeir unnið einn leik og tapað öðrum stórt.
Mættir voru: Andri, Bjarki, Golli, Grímur, Gummi Ómars, Jói, Jón Heiðar, Kolli, Smári og Stebbi. Í fjarveru fyrirliðans stillti Smári upp liðinu í hina margfrægu 2-3-1 uppstillingu. Smári var í markinu, Kolli og Stebbi í vörninni, Jói Bjarki og Andri á miðjunni og Grímur frammi.
Leikurinn byrjaði á pressu hjá andstæðingunum sem endaði með því að sofandaháttur í vörninni skapaði opið markskot sem lá inni, 0-1. Eftir þetta vöknuðu okkar menn aðeins og fóru að spila saman, þegar leið á fyrri hálfleikinn varð spilamennska Grettismanna þéttari og við náðum góðum tökum á leiknum. Með góðu spili sköpuðum við okkur um þrjú færi maður á móti markmanni en ekki vildi boltinn inn fyrir vömbina á markmanni andstæðinganna. Óbreytt staða í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn byrjaði eins og sá fyrri, Grettismenn í stöðugri sókn þótt að skortur hafi verið á opnum færum. Sókn eftir sókn pressuðum við á ÍK en fimm manna þéttur varnarpakki virtist ætla verða of mikið fyrir okkur. Nærri mínútu fyrir leikslok fengum við hornspyrnu, Andri kom inn á og tók sprettinn inn í teig. Sendingin rataði beint á kollinn á honum en á marklínunni beið enn ein bumban sem bjargaði því sem bjargað var fyrir andstæðingana. Þrátt fyrir mikla baráttu og yfirburða spilamennsku mest allan leikinn þá varð niðurstaðan tap. Vonbrigði eftir góða spilamennsku okkar manna og mikla yfirburði í leiknum.
Maður leiksins: Kolli

Sunday, May 18, 2008

Leikur á morgun

Þá er komið að þriðja leik Grettismanna og verður hann spilaður kl. 21 á Leiknisvellinum. Andstæðingarnir eru ÍK, Kópavogsbúar sem hafa spilað saman í nokkur ár með misgóðu gengi. Eftir sætan sigur á Mývetningum í fyrstu umferð fengu þeir skell í annari umferð er þeir töpuðu með fimm á móti Premier FC.
Miðað við allt og allt er þetta lið sem verður í neðri hlutanum í þessum riðli í sumar en þó varhugavert að vanmeta lið út frá fyrstu leikjunum. Það er jú vani liða í Carlsbergdeildinni að taka stakkaskiptum þegar líður á tímabilið.
Hópurinn hjá okkur ætti að verða nokkuð óbreyttur fyrir utan það að Sölvi, maður leiksins að mati lesenda, verður fjarri góðu gamni.

Sjáumst sprækir á morgun og mætum tilbúnir.

Tuesday, May 13, 2008

Breiddin skilaði sér.

Leikmenn mættu tímanlega í annan leik tímabilsins og var fjölmenn mæting. Mótherjarnir voru Húarnir sem voru óskrifað blað en áttu einn sigur fyrir þennan leik á móti Premier FC, 2-0.
Mættir voru: Andri, Arnór, Bjarki, Golli, Grímur, Gummi Ómars, Halldór Páll, Jói, Jón Heiðar, Jón Örn, Kolli, Krummi, Smári, Stebbi, Sölvi.
Fyrirliðinn stilti upp liðinu og varð 2-3-1 taktíkin fyrir valinu. Krummi var í markinu, Kolli og Smári í vörninni, Stebbi, Bjarki og Andri á miðjunni og Sölvi frammi.
Það var topp veður í Breiðholtinu, alger rjómablíða og betra gerist það ekki.
Leikurinn byrjaði á nokkru miðjumoði og var nokkur barátta milli liðanna þó svo að færin hafi látið á sér standa. Það var komið inn í miðjan fyrri hálfleikinn þegar að Kolli fær boltann á miðsvæðinu, keyrir fram og lætur vaða á markið. Með léttri snertingu í varnarmann smaug boltinn inn, stöngin inn. 1-0. Áfram hélt baráttan þó svo að Grettismenn væru að ná betri tökum á leiknum og þegar fimm til tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik nær Smári boltanum á miðjusvæðinu, þýtur upp miðjuna eins og eldibrandur og lætur vaða á markið. Þvílíkt skot/sending sem endar beint á Sölva sem var á ferðinni inn í teig og með léttri snertingu setur boltann í autt markið. 2-0. Húarnir bættu örlítið í sóknina og allt kom fyrir ekki og staðan óbreytt í hálfleik.
Þar sem mæting var góð þá var hægt að skipta ört inn á ef menn voru þreyttir og kom því algerlega nýtt lið inn á í seinni hálfleik. Það var að virka vel því menn vissu að þeir þyrftu að nýta vel þær mínútur sem þeir fengu. Seinni hálfleikurinn byrjaði sem gott framhald af þeim fyrri og vorum við snöggir að ná stjórn á leiknum. Eftir gott spil og nokkur góð færi þá lak inn þriðja markið eftir smá moð á vinstri kantinum hjá Jóni Heiðari. Hann komst nær marki og ætlaði að setja boltann inn en þar sem Gummi Ómars var í "betra færi" þá skrifast markið á Gumma. 3-0. Þegar leið á leikinn þá var þetta orði alger einstefna og sóttu Grettismenn látlaust á markið og dauðafæri hrönnuðust upp. Að lokum lak inn fjórða markið þegar Jói lék á mann og annan og sendi fyrir autt markið en þar var Sölvi kominn inn á markteig og ekkert annað en að pota tuðrunni inn. 4-0. Áframhaldandi einstefna og við á bekknum vorum hættir að telja dauðafærin, kunnum hreinlega ekki að telja svona hátt. Eina almennilega færi Húanna kom þegar ca. átta til tíu mínútur voru eftir af leiknum. Sending inn í vítateig vinstra megin þar sem andstæðingurinn var kominn einn innfyrir en Krummi bjargaði meistaralega í horn.
Stórgóður leikur og spilamennskan í góðum farvegi hjá liðinu, liðssigur hjá þéttum hóp.
Maður leiksins: Grímur Gunnars

Lífið er ein stór gleði...

... já, nú er búið að laga kommentakerfið og getur því sauðsvartur almúginn skilið eftir sig hrafnasparkið eins og við hinir háttvirtu.

Styttist í leikinn á móti Húunum og er staðfest að Krumminn mætir í markið og Kolli kemur óvænt inn, auk þess sem Jón Örn bætist við hópinn.

Munið bara að konur eru líka menn, nema þegar það hentar þeim ekki !

Monday, May 12, 2008

Leikur á morgun

Annar leikur okkar í Carlsbergdeildinni er á morgun kl. 21 á móti Húunum. Það verður hressandi að taka annan leik og sér í lagi þar sem liðið ætti að verða þéttara ef eitthvað er. Húarnir spiluðu á móti Premier FC í síðasta leik og unnu hann 2-0. Þetta verður því baráttuleikur og menn verða að vera tilbúnir frá fyrstu mínútu.
Nokkur forföll hafa nú þegar verið boðuð, Grjóni er að leggja grunninn að Óskarnum, Totti er að vinna í naflabrúnkunni og Steinar er farinn aftur heim í ósómann.

Sjáumst á morgun og þið sem voruð ósáttir með (sviga)nafnið, nú er ykkar tími til að bæta úr því.

Minni enn og einu sinni enn á getraunanúmer Sundfélagsins Grettis, 512.

Friday, May 9, 2008

Leikur strax eftir helgi

vil bara minna á leikinn á móti Húunum strax eftir helgi, þriðjudag. Annars rennur könnunin ljúflega áfram og þykir nokkuð greinilegt að Grjóni hefur aðgang að þremur tölvum ;)

Nýtið tækifærið og kjósið heiðarlega og endilega kommentið ykkar umsögn um mann leiksins. Ég var enn að þurka tárin þegar Stebbi kom með þessi líka hjartnæmu ummæli um frammistöðu mína og líkti mér við lélegustu rödd ensku úrvalsdeildarinnar. (bara ef fleiri myndu nýta "allan" kosningarétt sinn).

Eigið góða helgi njótið Sunnudagsins yfir skjánum.

Wednesday, May 7, 2008

Könnunin

já, þessi ágæta könnun hefur tekið kipp dag frá degi og eru heilir 10 búnir að kjósa, góð framistaða. Sjálfur er ég hálf klökkur yfir þeim mistökum sem einhver ykkar hefur gert með því að veita mér atkvæði sitt en takk samt. Ég átti engan vegin von á þessu og ég vil þakka....

Haldið áfram að skoða, kommenta og látið vita ef það er eitthvað sem ykkur finnst að eigi heima hérna á síðunni.+

ps. minni á getraunanúmer Sundfélagsins Grettis, 512

Monday, May 5, 2008

Næsti leikur

Sælir drengir,

FC Grettir spilar næsta leik þriðjudaginn 13. maí kl. 21.00, andstæðingarnir eru Húarnir.
Mæting er 15 mín. fyrir leik og mætum allir, leiðinlegt að stóla á gestina ;)

Minnum á að getraunanúmer Sundfélagsins Grettis er 512 !

Sunday, May 4, 2008

Carlsbergdeildin byrjuð

Fyrsti leikur í Carlsbergdeildinni hjá FC Gretti var í dag kl. 15 á Leiknisvellinum, spilað var á móti Ginola.
Mættir voru: Andri, Arnþór, Arnór, Golli, Grímur, Grjóni, Smári, Stebbi, Steinar, Sölvi.
Fyrirliðinn stilti upp liðinu og varð 2-3-1 taktíkin fyrir valinu. Grjóni var í markinu, Steinar og Smári í vörninni, Grímur Andri og Arnór á miðjunni og Sölvi frammi.
Það var nokkur vindur og hvessti þegar leið á leikinn.
Menn voru nokkuð riðgaðir í spilinu á fyrstu mínútunum en það voru andstæðingarnir líka. Í miðjum fyrri hálfleik skoraði Andri með hægrifótar skoti upp í hægri skeytin, eftir nokkuð klafs í gegnum vörn andstæðinganna. 1-0. Áfram hélt miðjubaráttan en smám saman náðum við meiri tökum á leiknum. Eftir stutta hvíld kom Andri aftur inn á í lok fyrri hálfleiks, tók við boltanum á miðjunni lék á einn og svo annan og tók vinstrifótar skot í fjærhornið. 2-0. Hættulegasta færið eftir seinna markið átti Golli, sending kom fyrir og hann var einn á fjærstöng. Skallinn var varinn af markmanni andstæðinganna í stöngina. Fljótlega kom hálfleikur.
Seinni hálfleikur hófst eins og þeim fyrri lauk, við héldum boltanum meira og stjórnuðum ferðinni án þess þó að skapa okkur góð færi. Þegar ca. tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum unnum við boltann á þeirra vallarhelming, stungusending á Sölva sem skilaði boltanum í netið. 3-0. Nokkur ágæt færi fóru forgörðum en svo fór sem fór. Ginola voru svo ákveðnir í komast á skorkortið og pressuðu þeir stíft síðustu tíu mínúturnar. Að lokum fengu þeir skotfæri fyrir utan teig sem rann í gegnum alla vörnina og mark. 3-1. Eftir markið komst á jafnvægi og leikurinn leið undir lok. Góður sigur í fyrsta leik.
Maður leiksins: Andri Freyr.